Straumur kortalán er greiðsluleið sem gerir þér kleift að dreifa greiðslum fyrir stærri kaup. Þú sækir um lánið þegar þú verslar hjá söluaðila sem býður upp á Straumur kortalán og velur þann lánstíma sem hentar þér.
Hvernig sæki ég um kortalán?
Þú sækir um samhliða kaupum hjá söluaðila sem býður upp á Straumur kortalán, annaðhvort í verslun eða á vefnum. Umsóknin fer fram rafrænt og þú færð upplýsingar um greiðslur og kostnað áður en þú undirritar lánið.
Hversu lengi get ég dreift greiðslunum?
Þú getur valið lánstíma frá 2 og upp í 36 mánuði. Hvaða lánstími stendur þér til boða getur meðal annars ráðist af fjárhæð kaupanna og samþykktri lánaheimild.
Hvað kostar að taka kortalán?
Kostnaður fer eftir fjárhæð og lánstíma. Áður en þú undirritar lánið sérðu vexti, gjöld, mánaðarlega greiðslu og heildarkostnað þess. Nánari upplýsingar má einnig finna í gildandi verðskrá Straums kortalána.
Hvernig greiði ég af láninu?
Mánaðarleg greiðsla er skuldfærð af kreditkortinu sem þú skráðir þegar þú tókst lánið. Gjalddagi er 10. dagur hvers mánaðar.
Hvað gerist ef ekki er næg heimild á kortinu?
Ef ekki tekst að skuldfæra greiðsluna á gjalddaga reynum við aftur daginn eftir. Takist það ekki heldur færðu greiðsluseðil í netbankann þinn.
Get ég greitt aukalega inn á lánið?
Já. Á þjónustuvef Straums kortalána getur þú valið fjárhæð sem þú vilt greiða aukalega. Greiðsluseðill er þá sendur í netbankann þinn þar sem þú gengur frá greiðslunni.
Hvar sé ég stöðuna á láninu mínu?
Á þjónustuvef Straums kortalána getur þú séð eftirstöðvar, greiðslur og nánari upplýsingar um kortalánin þín.
Hvað geri ég ef ég skipti um kreditkort?
Ef kortið þitt er endurnýjað geta kortaupplýsingarnar uppfærst sjálfkrafa. Ef þær gera það ekki getur þú skráð nýtt kort á þjónustuvefnum og tengt það við lánið.
Get ég notað debetkort?
Nei. Þú þarft að skrá kreditkort sem mánaðarlegar greiðslur lánsins eru skuldfærðar af.
Get ég verið með fleiri en eitt kortalán?
Já. Þú getur verið með allt að fjögur virk kortalán í einu. Samanlögð fjárhæð virkra kortalána getur að hámarki verið 1.500.000 kr. Sú lánaheimild sem stendur þér til boða ræðst meðal annars af lánshæfismati.
Get ég notað fleiri en eitt kreditkort fyrir kortalánin mín?
Já. Þú getur haft allt að fjögur kreditkort skráð vegna kortalána. Hvert lán er þó tengt einu kreditkorti og ekki er hægt að skipta greiðslu af sama láni á milli korta.
Af hverju var umsókninni minni hafnað?
Umsókn getur verið hafnað ef skilyrði fyrir lánveitingu eru ekki uppfyllt eða niðurstaða lánshæfismats leiðir til þess að ekki er hægt að veita umbeðið lán.
Til að eiga kost á Straumur kortaláni þarftu:
að vera með íslenska kennitölu og lögheimili á Íslandi
hafa náð 25 ára aldri
ekki vera á vanskilaskrá eða í vanskilum við tiltekin félög innan Kviku samstæðunnar.
Lágmarksfjárhæð kortaláns er 100.000 kr. og hámarksfjárhæð 1.500.000 kr. Endanleg lánaheimild ræðst meðal annars af lánshæfismati.
Hvernig er lánið greitt út?
Lánið er notað til að greiða fyrir kaupin og er fjárhæðin greidd beint til söluaðilans. Lánsfjárhæðin er því ekki lögð inn á bankareikninginn þinn.
Hver veitir Straumur kortalán?
Kvika banki hf. er lánveitandi Straumur kortalána. Straumur greiðslumiðlun hf. er dótturfélag Kviku banka og gerir söluaðilum kleift að bjóða kortalán sem greiðsluleið. Þegar þú tekur Straumur kortalán er lánssamningurinn því við Kviku banka hf.
Hvernig getum við aðstoðað?
Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16