Samstarfsaðilar Straums
Við leggjum áherslu á gott samstarf
Öll kerfin. Ein greiðslulausn.
Tengt við reksturinn þinn.
Við leysum flækjurnar svo þú getir einbeitt þér að rekstrinum. Straumur tengist helstu afgreiðslu-, bókhalds- og netverslunarkerfum á Íslandi og sér til þess að greiðslurnar flæði sjálfkrafa á milli kerfa. Hvort sem þú rekur verslun, veitingastað, netverslun eða þjónustufyrirtæki eru greiðslur samþættar ykkar kerfum.
- Tengingar við helstu afgreiðslukerfi og bókhaldskerfi
- Stuðningur við Shopify, WooCommerce og aðrar netverslanir
- Sjálfvirkt greiðsluflæði og minna utanumhald

Byggt fyrir þróunarteymi
Byggðu greiðslulausnir á Straumi
Við höfum hannað þróunarumhverfið þannig að samstarfsaðilar geti innleitt greiðslur með lágmarks fyrirhöfn. Með Partner Key og Partner Webhook getur allt ferlið - frá því að söluaðili skráir sig þar til terminal er tilbúið - orðið sjálfvirkt.
Þetta þýðir:
- Minni þróun. Minna viðhald
- Hraðari innleiðingu
- Betri upplifun fyrir sameiginlega viðskiptavini

Heimur samþættinga
Straumur + Adyen
Samstarf Straums og Adyen veitir þér aðgang að einu stærsta vistkerfi greiðslusamþættinga í heiminum. Auk þeirra lausna sem við bjóðum upp á á Íslandi getur fyrirtækið þitt nýtt sér hundruð alþjóðlegra samþættinga við leiðandi viðskiptakerfi, netverslanir og hugbúnaðarlausnir.
- Hundruð alþjóðlegra tæknipartnera
- Lausnir fyrir verslun, veitingarekstur, hótel og áskriftir

Fá tilboð
Algengar spurningar
585 6600