Fréttir /

Virkjaðu tveggja þátta auðkenningu

18.05.2026

Nú er hægt að virkja tveggja þátta auðkenningu við innskráningu á þjónustuvef Straums.

Með tveggja þátta auðkenningu þarf notandi ekki aðeins að slá inn lykilorð heldur einnig að staðfesta innskráningu með síma eða auðkennisforriti. Þetta eykur öryggi verulega og dregur úr hættu á óviðkomandi aðgangi.

Uppsetning er einföld og tekur aðeins nokkrar mínútur. Við mælum með að allir notendur virki þessa viðbót til að auka öryggi aðgangs að þjónustuvefnum.

Leiðbeiningar um hvernig á að virkja tveggja þátta auðkenningu má finna hér.

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16