Tveggja þátta auðkenning verndar reikninginn þinn jafnvel þótt einhver komist yfir lykilorðið þitt, því innskráning krefst alltaf staðfestingar í gegnum símann þinn.
Mikilvægt! Áður en þú byrjar:
Gakktu úr skugga um að þú hafir auðkenningarforrit (t.d. Google Authenticator eða Microsoft Authenticator) á símanum þínum.
Ná í Microsoft Authenticator App
Ná í Google Authenticator App
1. Skráðu þig inná þjónstuvef Straums
2. Farðu í stillingar og veldu Aðgangs- og öryggisstillingar
- Smelltu á Stillingar neðst í vinstri valmyndinni.
- Veldu Aðgangs- og öryggisstillingar í efsta flipa
- Skrunaðu niður að hlutanum Tveggja þátta auðkenning og smelltu á Virkja.

3. Staðfestu lykilorðið þitt og smelltu á Halda áfram

4. Opnaðu auðkenningarforritið á símanum þínum og skannaðu QR kóðann sem birtist á skjánum. Smelltu svo á Halda áfram.

5. Sláðu inn 6 stafa kóðann úr auðkenningarforritinu og smelltu á Staðfesta og virkja.

6. Vistaðu varakóðana þína!
- Þegar uppsetningin tekst birtast 10 varakóðar. Þessir kóðar gefa þér aðgang að reikningnum ef þú missir aðgang að símanum þínum.
Mikilvægt: Vistaðu kóðana strax á öruggum stað, t.d. í lykilorðastjóra eins og 1Password. Þú getur ekki skoðað þá aftur síðar.
- Smelltu á Hlaða niður eða Afrita og smelltu svo á Lokið.

7. Tveggja þátta auðkenning er nú virk
- Í hvert skipti sem þú skráir þig inn þarftu að slá inn kóða úr auðkenningarforritinu.
- Til að taka tveggja þátta auðkenningu af þarf að smella á Afvirkja.
Ef þú þarft frekari aðstoð við tveggja þátta auðkenningu getur þú haft samband við okkur með tölvupósti á straumur@straumur.is, í netspjalli á straumur.is eða í síma 585 6600.