
Söluaðilar Straums geta nú sent greiðslutengla með SMS eða tölvupósti beint úr þjónustuvef Straums. Hvert sent SMS kostar 10 kr. en ekkert gjald er tekið ef sent er með tölvupósti.
Með nýju uppfærslunni er hægt að stofna greiðslutengil og senda hann strax til viðskiptavinar án þess að nota posa eða vefverslun. Viðskiptavinurinn gengur svo frá greiðslu á öruggri greiðslusíðu Straums með korti, Apple Pay eða Google Pay.
Lausnin hentar vel þegar:
- senda þarf greiðslu eftir á
- taka þarf við greiðslu í síma eða í gegnum samfélagsmiðla
- rukka þarf fyrir þjónustu eða sérpantanir
- einfalda á greiðsluferli án vefverslunar
Greiðslutenglar eru stofnaðir á þjónustuvef Straums þar sem einnig er hægt að fylgjast með stöðu greiðslna, sjá hvaða tenglar hafa verið greiddir og endursenda tengla ef þörf er á.
Með þessari viðbót verður ferlið fljótlegra og einfaldara fyrir bæði söluaðila og viðskiptavini.
Ef þú hefur áhuga á að nýta greiðslutengla, sendu okkur línu á straumur@straumur.is og við græjum málið.
Fá tilboð
Algengar spurningar
585 6600