
Stafrænir innviðir gegna sífellt stærra hlutverki í daglegum rekstri fyrirtækja. Þegar vefverslanir, greiðslukerfi eða tölvupóstur verða óaðgengileg geta áhrifin verið bæði fjárhagsleg og rekstrarleg, ekki síst á háannatíma verslunar.
Gott netöryggi snýst ekki eingöngu um að draga úr hættu á öryggisatvikum heldur einnig um að vera undirbúin fyrir óvæntar rekstrartruflanir. Með einföldum aðgerðum og góðum undirbúningi geta fyrirtæki, óháð stærð, aukið öryggi sitt og rekstrarseiglu.
Lítil skref geta skipt miklu máli
Það þarf ekki alltaf flóknar eða kostnaðarsamar lausnir til að efla netöryggi. Einfaldar aðgerðir geta dregið úr áhættu og aukið viðnámsþrótt fyrirtækja:
- Virkja tveggja þátta auðkenningu þar sem það er í boði.
- Nota sterk og einstök lykilorð.
- Taka reglulega afrit af mikilvægum gögnum.
- Vera á varðbergi gagnvart grunsamlegum tölvupóstum og skilaboðum.
- Huga að varaleiðum í sölu og greiðslum ef hefðbundnar söluleiðir verða óaðgengilegar.
Hvernig er hægt að halda sölunni gangandi þegar eitthvað bregst?
Hluti af góðum rekstrarviðbúnaði er að hafa fleiri en eina leið til að taka á móti greiðslum. Þótt vefverslun eða önnur kerfi verði tímabundið óaðgengileg þarf það ekki að þýða að öll sala stöðvist.
Greiðslulausnir Straums geta nýst fyrirtækjum við slíkar aðstæður:
- Greiðslutenglar: Ef vefverslun liggur niðri er hægt að taka á móti pöntunum í gegnum síma eða samfélagsmiðla og senda viðskiptavinum greiðslutengil með SMS eða tölvupósti.
- Margnota greiðslutenglar: Hægt er að útbúa greiðslutengla fyrir fram fyrir tilteknar vörur, þjónustu eða tilboð og nýta þá eftir þörfum.
- Þráðlausir posar: Posar sem geta starfað óháð kassakerfi geta nýst sem varaleið ef kassakerfi verður óaðgengilegt.
- Þjónustuvefur Straums: Þar geta fyrirtæki fylgst með færslum og staðfest greiðslur þótt eigin verslunarkerfi liggi niðri.
Við hvetjum fyrirtæki til að kynna sér þær greiðsluleiðir sem standa þeim til boða og tryggja að þær séu tilbúnar til notkunar áður en á reynir. Þannig má draga úr áhrifum óvæntra rekstrartruflana og takmarka mögulegt tekjutap.
Hér má nálgast leiðbeiningar um greiðslutengla Straums.
Aukið öryggi á þjónustuvef Straums
Við hjá Straumi leggjum áherslu á að stuðla að öruggu viðskiptaumhverfi fyrir viðskiptavini okkar.
Á nýju ári verður tveggja þátta auðkenning því gerð að skilyrði fyrir innskráningu á þjónustuvef Straums. Með því bætist mikilvægt öryggislag sem dregur úr hættu á óheimilum aðgangi, jafnvel þótt lykilorð komist í rangar hendur.
Við hvetjum viðskiptavini okkar til að virkja tveggja þátta auðkenningu nú þegar. Leiðbeiningar um hvernig það er gert má finna hér.
Netöryggi er sameiginlegt verkefni. Með markvissum aðgerðum getum við saman stuðlað að öruggara og traustara viðskiptaumhverfi.
Fá tilboð
Algengar spurningar
585 6600