Straumur hefur uppfært viðskiptaskilmála sína. Uppfærðir skilmálar taka gildi 1. maí 2026.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Skýrari skilgreiningar á hugtökum og ábyrgð aðila, m.a. varðandi framkvæmd greiðslufærslna og ábyrgð söluaðila
- Nánari ákvæði um endurgreiðslur og framkvæmd þeirra
- Uppfærðar reglur um öryggi og meðferð kortaupplýsinga í samræmi við alþjóðlega öryggisstaðla (PCI DSS)
- Skýrari kröfur til söluaðila varðandi upplýsingar, tilkynningarskyldu og samstarf við Straum
- Nánari ákvæði um endurkröfur (chargebacks) og meðferð ágreiningsmála
- Uppfærðar reglur um notkun búnaðar og framkvæmd greiðslna, þ.m.t. netviðskipti og snertilausar greiðslur
- Breytingar á ákvæðum um gjaldtöku, uppgjör og mögulegan frádrátt
- Almennt bætt framsetning og skýrari orðalag til að auka gagnsæi og skilning
Uppfærðir viðskiptaskilmálar eru aðgengilegir hér.
Ef þú hefur spurningar varðandi breytingarnar er þér velkomið að hafa samband við okkur á straumur@straumur.is.