Fréttir /

99,999% uppitími Straums er ekki tilviljun

08.09.2026

Þegar greiðslukerfið dettur út er það ekki tæknivandamál, það er sala sem fer til samkeppnisaðila á meðan. Þess vegna mælum við uppitíma Straums og birtum töluna: síðustu 90 daga var hann 99,999%.

Í tölum þýðir það um 78 sekúndur samtals. Ekki á dag heldur samtals, yfir heilan ársfjórðung.

Ástæðan er ekki flókin. Straumur keyrir á Adyen, sömu greiðsluvél og knýr Spotify, Zara og Uber og er annað stærsta greiðslufyrirtæki Evrópu í veltu. Þegar innviðirnir eru þeir sömu og hjá stærstu verslunum heims, fylgir stöðugleikinn með.

Það þýðir líka að Straumur uppfyllir ströngustu alþjóðlegu öryggisstaðla sem til eru: PCI DSS, ISO 27001 og 3DS2. Allt vottað, ekki bara lofað.

Ef greiðslulausnin þín er að valda þér hugarangri - sendu okkur línu á straumur@straumur.is eða heyrðu í okkur í síma 585 6600

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16