Fréttir /

Öruggari, skýrari og þægilegri Þjónustuvefur Straums

29.10.2026

Við höfum undanfarið unnið að miklum endurbótum á Þjónustuvef Straums. Bæði hefur tæknin á bak við vefinn verið endurnýjuð og ýmislegt í útliti og virkni verið bætt. Markmiðið er einfalt: að gera söluaðilum auðveldara að nálgast upplýsingar um sölu, færslur og uppgjör.

Öruggari og traustari grunnur

Stór hluti vinnunnar hefur farið í að endurnýja tæknina á bak við þjónustuvefinn. Með því styrkjum við öryggi og áreiðanleika hans og leggjum grunn að frekari þróun og nýjum möguleikum.

Betri yfirsýn yfir söluna

Við höfum endurbætt mælaborðið svo þú hafir skýrari yfirsýn yfir sölu og veltu. Gröf eru skýrari og nú er þægilegra að skoða sölu eftir tímabilum, söluleiðum og sölustöðum.

Auðveldara að finna færslur og uppgjör

Við höfum einfaldað leiðina á milli færslna, heimilda og uppgjöra. Nú er auðveldara að rekja einstakar færslur, finna tengdar endurgreiðslur og sjá hvaða færslur tilheyra tilteknum uppgjörum.

Mörg smáatriði sem bæta upplifunina

Við höfum líka lagað ýmislegt smærra sem skiptir máli í daglegri notkun. Upplýsingar um posa og sölustaði eru skýrari, einfaldara er að sækja skjöl og viðmótið hefur verið samræmt og lagað til á minni skjám.

Þessar breytingar eru hluti af áframhaldandi vinnu okkar við að gera Þjónustuvef Straums betri og þægilegri í notkun.

Ertu með ábendingu?

Við viljum gjarnan heyra frá þér ef þú hefur athugasemdir eða hugmyndir að frekari endurbótum. Sendu okkur línu á straumur@straumur.is – við tökum vel á móti öllum ábendingum.

 

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16