
Straumur býður upp á að taka við greiðslum með American Express (Amex) kortum bæði í posa- og veflausnum.
Af hverju Amex?
Amex® kort eru mikið notuð bæði á Íslandi og á netinu. Kortahafar eyða að jafnaði hærri upphæðum í hverri færslu og heildarvelta Amex á Íslandi hefur aukist hratt á undanförnum árum. Fyrir mörg fyrirtæki felur þetta í sér talsvert tækifæri til að auka sölu, sérstaklega þar sem hluti viðskipta kemur frá erlendum viðskiptavinum.
Ég vil taka við Amex, hvað geri ég?
Greiðslur með Amex eru gerðar upp á sama tíma og aðrar kortagreiðslur og birtast á sama uppgjöri. Straumur sér einnig um endurkröfur og ágreiningsmál vegna Amex færslna, þannig að umsýsla helst einföld.
Ef þú vilt taka á móti Amex er einfalt að hafa samband við þjónustuver Straums í síma 585 6600 eða á straumur@straumur.is og við græjum þetta hratt og örugglega.
Fá tilboð
Algengar spurningar
585 6600