Fréttir /

Nýjustu greiðslutrend á viðburði Straums

18.02.2026

Á dögunum fengum við hjá Straumi tækifæri til að bjóða samstarfsaðilum okkar úr röðum hugbúnaðarhúsa og tækniaðila á viðburð í samstarfi við Adyen. Þar hittumst við til að ræða þróun greiðslna og hvernig þær eru sífellt að verða stærri hluti af notendaupplifun, hraða og samkeppnishæfni fyrirtækja.

Við fórum yfir nýjustu greiðslutrendar, þar á meðal Agentic Commerce, þar sem sjálfvirkni, gervigreind og greiðslur fléttast saman og opna nýjar leiðir til að bæta þjónustu og einfalda rekstur.

Einnig deildum við raunverulegum dæmum úr íslenskum rekstri og ræddum hvernig greiðslulausnir virka best þegar tækni, þjónusta og samstarf fara saman. Umræðurnar voru lifandi og endurspegluðu vel þann áhuga sem er á framtíð greiðslna og nýjum lausnum á markaðnum.

Við þökkum öllum sem komu kærlega fyrir komuna og góð samtöl – og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

Hér má sjá nokkrar skemmtilegar myndir frá viðburðinum.


Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16