
Stærri kaup, meiri sveigjanleiki
Straumur, í samstarfi við Kviku banka, kynnir nú Kortalán - nýja greiðsluleið sem gerir viðskiptavinum þínum kleift að dreifa stærri kaupum yfir lengri tíma.
Straumur kortalán fellur einfaldlega inn í söluferlið og hægt að virkja fyrir posa, vefverslun eða greiðslutengla. Við sjáum um lánið og þú getur einbeitt þér að sölunni.
Einfalt fyrir þig. Þægilegt fyrir viðskiptavininn
Við afgreiðslu er Kortalán valið sem greiðsluleið. Viðskiptavinurinn skannar QR kóða, klárar lánsumsóknina í símanum sínum og undirritar rafrænt. Að samþykktu láni færð þú greiðsluna með hefðbundnum hætti.
Helstu kostir Kortaláns:
- Lánsfjárhæð 100.000–1.500.000 kr.
- Greiðsludreifing 2 - 36 mánuðir
- Engin lánaáhætta - Straumur og Kvika banki veita lánið
- Enginn fastur mánaðarkostnaður - þú greiðir aðeins þegar þjónustan er notuð
- Hefðbundið uppgjör - þú færð greiðsluna í þínu venjulega uppgjöri frá Straumi
Hafðu samband við okkur á sala@straumur.is og við aðstoðum þig við að setja þjónustuna upp fyrir verslun eða vefverslun.
Fá tilboð
Algengar spurningar
585 6600