Fréttir /

Stærstu söludagar ársins nálgast. Eru greiðslurnar klárar?

19.10.2026

11.11, svartur föstudagur og jólaverslunin eru handan við hornið. Fleiri viðskiptavinir, fleiri færslur og minni þolinmæði í röðinni. Þá skiptir máli að greiðslurnar gangi hratt fyrir sig.
Törnin hefst 11. nóvember. Svartur föstudagur er 27. nóvember og netmánudagur 30. nóvember. Svo tekur jólaverslunin við.

Á svona dögum þarf lítið til að hægja á öllu. Posi sem frýs, greiðsla sem fer ekki í gegn eða viðskiptavinur sem skilur eftir körfuna fulla á netinu því hann fann ekki kreditkortið til að stimpla inn númerið. Greiðslan er síðasta skrefið í hverri sölu og á ekki að vera það sem stoppar hana.

Fólk borgar með símanum

Á svörtum föstudegi 2025 voru 85% greiðslna í verslunum snertilausar og þriðjungur veltunnar fór í gegnum Apple Pay, Google Pay og önnur veski, samkvæmt Adyen. Fólk er hætt að leita að kortinu. Netverslunin þarf að fylgja.

Apple Pay líka í tölvunni

Flestir eru með Apple Pay í símanum en versla samt oft í tölvu. Í veflausnum Straums skiptir það ekki máli. QR-kóði birtist á skjánum, viðskiptavinurinn skannar hann með iPhone og staðfestir. Ekkert kortanúmer að slá inn.

Það borgar sig. 10-30% fleiri klára kaupin þegar Apple Pay og Google Pay eru í boði, og hvort tveggja fylgir öllum greiðslulausnum Straums.

Fimm atriði til að fara yfir fyrir törnina

  • Prófaðu posana. Eru þeir hlaðnir, uppfærðir og með stöðuga nettengingu? Það borgar sig að eiga varaposa. Það er einfalt að panta aukaposa á þjónustuvefnum.
  • Hugsaðu um álagið. Ef röðin var löng í fyrra verður hún það aftur. Þarf fleiri afgreiðslustaði? Pantaðu auka posa tímanlega.
  • Kauptu í eigin netverslun. Farðu sjálf/ur í gegnum ferlið í símanum, frá körfu að kvittun. Það sem pirrar þig pirrar viðskiptavininn líka.
  • Undirbúðu starfsfólkið. Allir á vakt þurfa að kunna á endurgreiðslur og skil. Jólagjafirnar koma aftur í janúar. Þú getur bætt við notendum á þjónustuvef Straums.
  • Fylgstu með sölunni. Þegar færslum fjölgar er gott að sjá stöðuna jafnóðum, ekki bara þegar uppgjörið kemur. Á þjónustuvefnum sérðu söluna dag frá degi og getur borið hana saman við sama tíma í fyrra.

Uppgjör yfir áramótin

Gamlársdagur er ekki bankadagur og nýársdagur, föstudagurinn 1. janúar, er frídagur. Uppgjör sem hefði annars borist þessa daga er greitt út mánudaginn 4. janúar.

Ef laun eða reikningar falla á gjalddaga um mánaðamótin er gott að gera ráð fyrir því strax.

Þarf eitthvað að laga?

Betra að gera það núna en á miðjum svörtum föstudegi. Hafðu samband og við förum yfir málið með þér.

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16