Fréttir /

Er allt klárt fyrir sumarið?

01.06.2026

 

Sumarið er handan við hornið og með því kemur aukin umferð. Erlendir ferðamenn, fleiri sölustaðir og útisvæðið opnar. Við höfum sett saman nokkur atriði sem skipta máli fyrir söluaðila að vita áður en sumarið fer af stað.


Erlendir gestir borga í sinni mynt.
Þú færð borgað í íslenskum krónum.

Þegar erlendur ferðamaður greiðir með korti hjá þér getur posinn boðið honum að greiða í sinni heimamynt í stað íslenskra króna. Þetta kallast Dynamic Currency Conversion, eða Myntval.

Fyrir gestinn eru þetta þægindi. Fyrir þig eru þetta aukatekjur af hverri færslu.

Til að geta boðið upp á Myntval þarf þjónustan að vera virk á posunum þínum. Margir söluaðilar vita ekki hvort hún sé virk eða ekki. Það er einfalt að kanna málið. Sendu okkur línu á straumur@straumur.is og við athugum stöðuna fyrir þitt fyrirtæki.

Vantar fleiri posa fyrir sumarið? 

Það er einfalt að panta fleiri posa á þjónustuvefnum.

Hvort sem þú ert að bæta við útisvæði, opna á fleiri stöðum eða þarft bara einn posa í viðbót, þá er einfalt að panta posa á þjónustuvefnum. Farðu inn á þjónustuvefinn, veldu tegund og skráðu afhendingastað. Við höfum samband þegar posinn er tilbúinn.

Leiðbeiningar fyrir Þjónustuvef Straums


Ertu að taka á móti nýju starfsfólki í sumar?
Gefðu þeim réttan aðgang.

Þú getur bætt notendum við þjónustuvefinn og stillt nákvæmlega hvað þeir sjá og geta gert. Aðgangur getur verið takmarkaður við einn samning, ákveðnar aðgerðir eða eingöngu lesréttindi.

Engin þörf á að deila lykilorðum og einfalt að afvirkja notanda hvenær sem er.

Leiðbeiningar fyrir Þjónustuvef Straums

Sendu uppgjörið sjálfkrafa í bókhaldið 

Ertu enn að fara yfir færslur handvirkt? Straumur tengist beint við BC, DK, Tegra, Dynamix AX og Uniconta. Uppgjör fara sjálfkrafa úr þjónustuvefnum yfir í bókhaldskerfi þitt, án þess að þú þurfir að gera nokkuð.

Farðu áhyggjulaus í sumarfríið og sendu uppgjörið beint í bókhaldið!

Óska eftir beinni tenginu við bókhaldið

Allar greiðslur velkomnar!

 

Söluaðilar Straums hafa kost á að taka við American Express, JCB og UnionPay. 

  • Amex kort eru mikið notuð, bæði á Íslandi og á netinu, og korthafar eyða að jafnaði hærri upphæðum í hverri færslu.
  • JCB kort eru algeng meðal ferðamanna frá Japan og öðrum Asíulöndum, þar sem þau eru mikið notuð í daglegum greiðslum.
  • UnionPay er stærsta kortakerfi í heimi og er sérstaklega útbreitt meðal kínverskra ferðamanna og í alþjóðlegri netverslun.

Uppsetning er einföld og Straumur sér um ferlið með þér. Hafðu samband við okkur á straumur@straumur.is.

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16