
Hagkvæm og sniðug lausn til að taka á móti greiðslum á netinu
Greiðslutenglar henta þeim sem hafa einfalt vöruframboð eða vilja sérsníða vörukörfu sína að viðskiptavinum sínum - án þess að þurfa posa eða vera með sérstaka vefverslun eða app. Nú getur þú stofnað greiðslutengla á auðveldan hátt á þjónustuvef Straums.
Greiðslutenglar eru hlekkir á örugga greiðslusíðu Straums sem þú sendir beint á viðskiptavini þína. Tengillinn birtist sem vefslóð sem hægt er að afrita og áframsenda á korthafa. Greiðslutengillinn inniheldur verð og aðrar upplýsingar um vörur sem þú stillir á þjónustuvef. Tenglarnir geta verið ein- eða margnota, innihaldið afslátt og fleira.
Svona virka greiðslutenglar:
- Þú stillir verð, vöruupplýsingar, afslátt og fleira á þjónustuvef.
- Þú sendir hlekkinn á viðskiptavin.
- Viðskiptavinur gengur frá kaupum á öruggri greiðslusíðu Straums með korti, Google Pay eða Apple Pay.
Ef þú vilt nýta þér greiðslutengla, hafðu samband við okkur á straumur@straumur.is og við virkjum aðgang fyrir þig.
Fá tilboð
Algengar spurningar
585 6600