Fréttir /

AI að kaupa fyrir fólk – næsta skref í netverslun

17.04.2026

Gervigreind er farin að hafa áhrif á hvernig við leitum að vörum og þjónustu. Næsta skref er að hún taki einnig þátt í sjálfum kaupunum.

Þetta er kallað agentic commerce – þegar notandi felur gervigreind að finna, bera saman og kaupa vörur fyrir sig.

Í stað þess að fara sjálf/ur í gegnum netverslun getur viðskiptavinur einfaldlega sagt:
Finndu fyrir mig bestu flugin á þessum dagsetningum“ eða „pantaðu þessa vöru á besta verði“ – og gervigreind sér um rest.

 

Hvað þýðir þetta fyrir fyrirtæki?

Þessi þróun breytir því hvernig viðskiptavinir tengjast fyrirtækjum.

  • Viðskiptavinurinn er ekki lengur alltaf í beinum samskiptum í gegnum vef eða app
  • Gervigreind verður milliliður sem tekur ákvarðanir
  • Samkeppni færist meira yfir í verð, framboð og greiðslulausnir frekar en upplifun á vef

Þetta setur nýjar kröfur á greiðslulausnir:

  • Að geta tekið við greiðslum frá „snjallfulltrúum” (AI agents)
  • Að tryggja skýrt samþykki og rekjanleika
  • Að halda utan um viðskiptavininn, þrátt fyrir nýjar leiðir í kaupferlinu

 

Af hverju skiptir þetta máli núna?

Þróunin er enn á byrjunarstigi, en hún er að gerast hratt.

Alþjóðleg fyrirtæki eins og Google, Visa og Adyen eru þegar farin að vinna að stöðlum og lausnum sem gera gervigreind kleift að framkvæma greiðslur á öruggan hátt.

Adyen er þar í fremstu röð og þróar greiðsluinnviði sem styðja við þessa nýju tegund viðskipta.

 

Hlutverk Straums

Hjá Straumi fylgjumst við náið með þessari þróun.

Sem samstarfsaðili Adyen nýtum við þá tækni og innviði sem eru að mótast á alþjóðavísu og gerum íslenskum fyrirtækjum kleift að vera tilbúin fyrir næstu skref í netverslun.

Við leggjum áherslu á að greiðslulausnir okkar:

·      styðji við nýjar leiðir í netverslun

·      séu öruggar og rekjanlegar

·      og gefi fyrirtækjum stjórn á sínum viðskiptasamböndum

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16