Fréttir /

Þegar kaupandinn er gervigreind

20.07.2026

Það er ekki lengur óvenjulegt að biðja gervigreind um að finna bestu vöruna, bera saman verð, velja afhendingarmáta og undirbúa kaupin.

Næsta skref er að hún ljúki kaupunum sjálf – í umboði notandans.

Þetta er þróun sem víða er kölluð Agentic Commerce: viðskipti þar sem gervigreindarþjónn tekur sjálfstæðar ákvarðanir innan þeirra heimilda sem notandinn hefur veitt. Hann leitar upplýsinga, ber saman valkosti og getur lokið kaupum án þess að notandinn staðfesti hvert skref.

Þetta er ekki aðeins ný upplifun fyrir neytendur. Það kallar einnig á nýja nálgun í greiðslumiðlun.

Greiðsluinnviðir sem voru hannaðir fyrir fólk

Greiðslukerfi síðustu áratuga byggja á þeirri forsendu að manneskja sé viðstödd þegar greiðsla er samþykkt. Svikavarnir greina meðal annars innsláttarhraða, músarhreyfingar, staðsetningu og aðra hegðun sem einkennir raunverulegan notanda.

Þegar gervigreind framkvæmir kaupin breytast þessar forsendur.

Kerfin þurfa að geta sannreynt að þjónninn hafi gilt umboð, metið áhættu með öðrum hætti og tryggt að söluaðili fái allar þær upplýsingar sem þarf til að ljúka viðskiptunum með öruggum hætti.

Þetta er ein stærsta breyting sem greiðsluinnviðir hafa staðið frammi fyrir frá því rafræn viðskipti urðu almenn.

Hvað þýðir þetta fyrir íslensk fyrirtæki?

Þegar ný tækni verður hluti af alþjóðlegum greiðsluinnviðum skapast jafnframt tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að nýta hana, án þess að byggja upp sérlausnir frá grunni.

Þótt ekki liggi enn fyrir hvenær þessar lausnir verða almennt aðgengilegar hér á landi er þróunin skýr.

Viðskipti þar sem gervigreind starfar í umboði notenda eru að færast úr tilraunastarfsemi yfir í daglegan rekstur.

Þess vegna teljum við mikilvægt að fylgjast með þessari þróun nú þegar og hjálpa íslenskum fyrirtækjum að undirbúa sig fyrir næsta þróunarskeið í greiðslumiðlun.

Hvernig Adyen + Straumur bregst við

Til að mæta þessari þróun hefur Adyen kynnt Adyen Agentic, nýja lausn sem styður við greiðslur þegar gervigreind kemur að kaupferlinu. Straumur byggir greiðslulausnir sínar á innviðum Adyen.

Lausnin byggir á þremur meginþáttum:

  • Agentic Feed gerir gervigreindarþjónum kleift að nálgast uppfærðar upplýsingar um vörur, verð og birgðastöðu í rauntíma.
  • Agentic Cart sér um að setja saman kaup með réttu verði, sköttum og sendingarkostnaði áður en greiðsla fer fram.
  • Agentic Payments annast greiðsluna sjálfa og beitir sömu öflugu áhættugreiningu og svikavörnum og Adyen notar í dag.

Markmiðið er ekki að breyta því hver selur vöruna heldur að gera nýtt kaupferli mögulegt án þess að fórna öryggi eða trausti.

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver Straums er opið alla virka daga 9 – 16